Möttullinn er á milli jarðskorpunnar og ytri kjarnans og er stærsta hvel jarðarinnar. Næst undir jarðskorpunni er möttullinn í föstu formi en þegar nær dregur jörðinni verður hann seigfljótandi vegna hitans. Næst kjarnanum er hann glóandi heitur (3250°C) en í föstu formi vegna mikils þrýstings. Hann er gerður úr málmríkara efni en jarðskorpan og er um það bil 2900 km á þykkt.